Lífsgleðin uppmáluð
Ég fer í sund
15.08.2006 14:58:30 / heimir

Flottræfill

Jahá, ég ákvað sisvona að rita hér eitthvað, sama hvursu ómerkilegt það ku vera.
Tók meira að segja ákvörðun um að skrifa hér eilítið um sjálfan mig.

1. Ég er latur við að blogga, eins og þið hafið kannski tekið eftir, en gæti það tengst ykkar leti við að kvitta fyrir komuna?

2. Ég er sjómaður og finnst það ágætt í bili. Stefni samt á að hætta því áður en um of langt líður.

3. Ég eeelllska að borða, og finnst rosalega gaman að fara út að borða. Gallinn við þetta er að ég borða alltof hratt og mikið, og ef ég ætti að líkja matarvenjum mínum við eitthvað þá er það Dr. Zoidberg.

4. Ég á það oft til að vera alveg húðlatur og finnst fátt betra en að slappa af með tærnar upp í loft.

5. I like the sauce.

6. Ég á sérstaka bók til að lesa á klósettinu. Hún heitir Bathroom reader og er gefin út af  The bathroom reader institute.

7. Ég á það til að vera snobbaður. Mér finnst það soldið gaman stundum. Reyni samt að líta aldrei niðrá annað fólk.

8. Ég er tölvunörd.

9. Ég á það til að vera rosalega kærulaus, samt ekkert hættulega.

10. Ég er ekki stressaður, en fer fljótt að leiðast ef ég er að gera eitthvað sem mér finnst ekki skemmtilegt.

Jæja þá eruð þið einhverju fróðari um mig. Enjoy
Ég er þá farinn í bili. Over and Out


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 15:21:55 / heimir

No Comment!

Úje. shit hvað veðrið á Íslandi sökkar mikið. Ekki hægt að segja að þetta sé neitt háklassasumar. En já ég er ekki búinn að vera að gera mikið annað en að vinna mig í gegnum 5 seríur af Futurama og labba um bæinn. Ógeðslega spennandi og gaman.

Var að keyra á Miklubrautinni áðan og sá þar eldri mann standa út á miðri götunni alveg týndur og það var ekki hægt að segja að hann vissi alveg hvar hann væri, stóð bara þarna og setti upp svip sem leit út eins og hann væri að reyna að segja: Huh hvar eru hestarnir sem eiga að vera að draga þessa vagna áfram.

Þannig að ykkar einlægur gerðist svo indæll að hringja í lögregluna og láta vita af þessari umferðarógn, veit samt ekki hvað varð um hann eða hvað gerðist næst. En get nú ekki sagt annað en að ég sé forvitinn og fullur vorkunnar.

Hef ekkert að segja þannig að ég ætla að enda þetta á gamalkunnum nótum sem einhvernveginn eru samt alltaf skemmtilegar:

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.

Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.

Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.

Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.

Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.

Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.

Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.

Skopparakúku: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.

Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.

Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 14:01:25 / heimir

101 Ógæfumenn

Jæja þá er maður búinn að hafa allt of margt á könnuni upp á síðkastið til að blogga og vil ég biðjast velvirðingar á því. En alla vega þá er ég loksins fluttur í Þingholtin og nýt þess afar mikið. Búinn að vera í útlöndum og er ekki á leiðinni þangað aftur á næstunni þar sem hún Eva mín er loksins búin með skólann og er komin heim til að vera, búinn að vera á sjó og er að fara aftur á fimmtudaginn, búinn að eyða alltof miklum peningum í IKEA og Krónunni og Bónus og Hagkaup. Helvítis dýra Ísland.

Ég get nú ekki sagt annað en að það hafi verið pínu sjokk að koma heim, það var alltof gott veður í Englandi síðasta daginn þar, vorum í grillveislu og að safna tani, já það er byrjað aftur hehe, þannig að við ákváðum að fresta heimkomu um einn dag. Það var bara snilld, en svo eftir allt of langt og leiðinlegt ferðalag með viðbjóðslega mikið drasl þá komum við heim. Sem er ekki í frásögur færandi nema það að það átti að bíða okkar bíll á flugvellinum en þar sem við komum degi of seint þá var hann ekki þar þannig að við þurftum að taka flybus í bæinn, þegar við vorum að labba út af vellinum og í businn þá horfðum við í rassgatið á rútunni keyra burt og þurftum að bíða í klukkutíma eftir næstu. Nett pirrandi svona. En ávallt jafn yndislegt að koma heim aftur.

En nú er sumarið komið og maður þarf að fara að finna sér einhverja skemmtilega afþreyingu fyrir þessa "góðu" daga sem eru í vændum, þar má nefna hluti eins og:

Velta kúm, þær sofa víst standandi og það er hægt að velta þeim á hliðina.

Dorga á bryggjunni, klassísk afþreying.

Fara á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði, of mörg H en mjög mikilvægt.

Sýna heiminum hvað maður er lélegur í íþróttum með að fara að spila fót og körfuolta.

Fara í sund og blogga um það. Já ég fer að byrja aftur á því.

En já ég ætla að segja þetta gott í bili og bið að heilsa ykkur elskurnar mínar og hafið það sem best.

Gleði


Nú er mér í geði glatt
Gaman er á kvöldin
Alla klæki hef ég kvatt
Kætin hefur völdin

Nú er húmað allt er hljótt
höfð nú víki sumarnótt
Fuglar smáir sofa rótt
Sólin bráðum vekur drótt.



dingaling
1956-



» 4 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 11:45:30 / heimir

Me love you short time

Já ég er kominn hálfa leiðina heim aftur, er í rvk þessa dagana. Reyndar farinn að huga að heimferð þar sem hún móðir mín er örugglega orðin gráhærð af söknuði.

Eeeen já ég semsagt var í Englandi, landi fótboltabulla, drykkjurúta og að því er virðist fjölbreytninnar? Og það sem virðist nú soldið standa uppúr þessari ferð, fyrir utan frábæra sýningu hjá Evu og skemmtilega kvöldverði, það var þegar ég var "úti að fá mér ferskt loft" og fór allt í einu að heyra ægileg öskur og læti í þarnæsta húsi, á eftir þessu fylgdu það sem virtist vera barsmíðar og á eftir því komu 3 löggubílar. Hressir þessi englendingar.

Uuu, ég er búinn að vera með svo ægilega margt í hausnum uppá síðkastið sem ég ætlaði að deila með ykkur en er tómur núna. Damn, þannig að ef einhver sem ég er búinn að tala við uppá síðkastið man eitthvað, endilega hressa uppá minnið hjá mér.

Þagnar ljóð


Mild orð
fágæt orð
skapandi orð
valin af kostgæfni
að færa þau í efndir

ég lagði orðin á minnið
tilbúinn á lyklaborðinu
og liðkaði fingurnar
einsog píanóleikarinn
fyrir einleikinn

en þá helltist hún
yfir mig þögnin
hún
sem alltaf kemst
að kjarnanum

segir sannleikann
umbúða lausan
í þagnar ljóði



Janus Hafsteinn Engilbertsson
1942-


Bless í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 23:11:00 / heimir

Fuck It!

Jæja ætli ég gerist þá ekki bara stórmannlegur og taki áskorun Steinars og taki þátt í svona bloggleik. Á þeim nótunum vil ég einnig tilkynna að þetta er í fyrsta og jafnvel síðasta skipti sem ég læt draga mig í svona. Undantekningar eru gerðar ef eitthvað verulega skemmtilegt úr mínu lífi eða annara kemur fram:)

4 Störf sem ég hef unnið um ævina: Rækjupakkari á Strýtu (gefandi), byggingarvinna (gefandi), sjómaður (gefandi) og pizzubakari (gefandi)

4 Bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur: Something about Mary, Snatch, Lock, Stock and two smoking barrels og Zoolander.

4 Staðir sem ég hef búið á: Akureyri og Sandgerði (3 mánuðir), and thats about it.

4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar: Lost, Simpsons, Malcolm in the middle og Andy Richter controls the universe.

4 Staði sem ég hef heimsótt í fríum: Leicester, Hamborg, Köben og Algarve.

4 Síður sem ég skoða daglega: Hugi.is, B2.is, Fat-pie.com og gmail.com

4 Bækur sem ég les oft: HMM, The hobbit og Lord of the rings serian

4 Staðir sem ég vildi heldur vera á núna: London, Reykjavík, Mauritius eða Las Vegas

4 sem ég skora á að gera þetta: Esteban Malaga-fangi, Hlynur HBO, Silli og Gulli símamærin lausláta.

Helvíti gaman að þessu og þar hafið þið það.. Uppfull af tilgangslausum fróðleik eins og þeim að hestar fá líka tannpínu, who would have guessed.

Endum þetta nú á léttu nótunum frá sjálfum Bólu-Hjálmari:

Ég er gull og gersemi, 

gimsteinn elskuríkur. 

 Ég er djásn og dýrmæti 

 Drottni sjálfum líkur

Laters. Heimir hinn menningarfulli


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 20:11:33 / heimir

We Have A Saying:

Hnífalaus sjómaður er eins og tussulaus hóra.

En já það er svo yndislegt hvað lífið kemur manni stöðugt á óvart, ég bjóst ekki við öðru en að hann Gulli símamær myndi leysa getraunina en það var Silli sem gerði það. Til hamingju. Ég skal láta þig fá ónýta hártoppinn sem ég bloggaði um um daginn ef ég finn hann.

Annað dæmi um hvað kemur manni á óvart, eða alla vega mér, er það hvað mér finnst yndislegt að finna ferskan ilminn af brakandi nýju kaffi. Og það sem kemur mér virkilega á óvart er það að ef ég drekk tvo bolla af brakandi fersku kaffi þá helst ilmurinn alla leiðina í gegnum mig og ég finn nánast sömu brakandi fersku kaffilyktina af pissinu mínu, ekki það að ég sé að þefa heldur yfirgnæfir hún aðra lykt sem að fylgir gjarnan baðherbergjum. Ó, hve yndislegt lífið getur verið og lítið þarf til að gleðja litla sál.

Ákvað að gerast menningarlegur í nokkra daga og tók mér til lesningar bækur eftir þá Halldór Kiljan Laxness og Fjodor Dostojevski. Ekki misskilja, þetta var ekki samvinnuverkefni hjá þeim heldur sitthvor bókin. Og svei mér þá eef það er ekki bara rétt sem er sagt um þessa menn: they are all that.

Laters Heimir Fullur lífsgleði H.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 20:20:08 / heimir

Smá Getraun

" What is that horrible smell??"

"Does it smell like a crab died in yogurt, cos if it does then its probably the wound on my back!"

Tilvísun í hvað er þetta.. Gulli þú ættir að geta þetta, en með ykkur hin þá veit ég ekki.

533 y4 1473r


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 19:24:29 / heimir

Blekklessur raunveruleikans

Já svei mér þá. Lítið um djúsí sögur, en já ég var að koma heim úr rólegum sjótúr með leiðinlegu veðri, hreeesst. Og er að fara aftur:S

En ég fór eitthvað að velta fyrir mér um daginn hvernig það var að vera unglingur. Mér skilst nú á flestum sem maður talar við að þessi einstæða lífsreynsla sé afar mismunandi manna á milli, hvort þú sért strákur eða stelpa, vinsæll eða óvinsæll, feitur eða mjór, grannur eða stór, you get the point. Segir sig kannski sjálft. Og inní þessum umræðum hafa stelpur sagt mér að þær telji oft sín unglingsár erfiðari að mörgu leiti, og þá kannski einna helst útaf persónuleikakrísum. Hmm hver á ég að vera? Með hverjum á ég að hanga? Er ég skemmtileg? Já ég veit það ekki, átti alveg ágætis unglingsár sjálfur, með hæfilegri gelgju eins og flestir að sjálfsögðu.

En það var nú ekki alveg svona málefnalegt sem mig langaði að tala um heldur meira kannski í þeim kantinum að nú byrja krakkar oft að gera kjánahluti þegar þeir eru unglingar sem þeir þurfa að fela fyrir foreldrum sínum og þar sem ég gerði ýmislegt sjálfur þá langaði mig til að skrifa niður nokkrar góðar spurningar og svör, flestar spurningar verða hlutverk foreldris og svör unglinga, you get the point:)

Foreldri: Jæja (insert unglinganafn) hvað er þetta sem ég rakst á hérna í vasanum þínum þegar ég var að þvo? Sígarettur?

Unglingur viðbrögð 1: HA?? Hvað varstu að gramsa í vösunum mínum? Er ekki í lagi eða? (er æstur)

Unglingur viðbrögð 2: Já þetta. Hann/hún (insert friends name) á þetta, mamma hans/hennar veit ekki að hann/hún reykir og hann/hún bað mig um að geyma þetta og þar sem ég er vinur vina minna sagði ég bara já. (verður að vera alveg kúl með þetta svar. (Má fylgja á eftir viðbr. 1 ))

For: (insert name) koddu hérna aðeins og talaðu við mig! Ert þú byrjaður/byrjuð að smakka áfengi?

Ungl. kúl á´ðí: Ha? Nei eða sko vinur minn var að drekka í gær og hann sullaði niður. Þess vegna er þessi lykt í herberginu mínu.

Lögregla: Jæja kallinn minn ert þú orðinn 16 ára?

Ungl: HLEYPUR!

Lögr: Segðu mér væni minn, reykir þú eitthvað sterkara en sígarettur? Þú ert eitthvað svo skrýtinn til augnanna!

Ungl: Nei, ég er bara búinn að vera með opin augun í sólinni í allan dag og er brunninn í hornhimnunum.

Já hér fyrir ofan má sjá ýmis ráð til að koma sér úr vandræðum og verð ég nú að segja að mest af þessu er alveg gjörsamlega skothelt! Trúið mér, ég nota þetta ennþá. Jæja þá er best að fara að koma sér burt. *sjáumst* síðar

P.S. Við skulum enda þetta á fallegu ljóði af www.ljóð.is

Ég er enginn alki


Ég er enginn alki
en ég hef túskilding í hendi
og lostafulla konu
mér við hlið.

Áðan voru
unglingarnir
að sníkja af mér rettu
hei eigum við að berja þig
sögðu þeir.

Krakkar mínir
má ég klípa í hana þessa.

Er hún á lausu?

Skíttu í píkuna á þér
helvítis perrinn þinn.

Nóttin lagðist yfir.



Páll Tómasson
1982-



» 7 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 20:15:20 / heimir

Ah lífið, alvaran og kílóaeyðsla

Jamm nú er sá tími ársins kominn sem heldur öllum vaxtarræktarstöðvum á lífi, fólk að losa sig við jólakílóin. Ég tek lítinn þátt í því þrátt fyrir að hafa bætt á mig nokkrum. Bara meira að elska.

En mig langar líka að biðjast afsökunar á blogleti minni, skal reyna að bæta mig fljótlega. Er nebblinlega að fara á hafið á morgun og nenni ekki að nördast núna, ætla að reyna að finna mér eitthvað betra að gera í kvöld.

Alla vega *sjáumst* eftir viku og hafið það gott.

P.S. skal reyna að koma með einhverjar djúsí sögur þá


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 17:12:06 / heimir

Könnte es ein Weihnachtsrad sein?

Uss helvíti gaman í Þýskalandinu. Vændi leyfilegt, spilavíti og strippstaðir. Sannkallað jólafjör hér á bæ.
Eeenn þetta er asskoti slæmt ástand sem er í gangi, að fá sal um áramótin er því sem næst vonlaust og þar af leiðandi er ekki líklegt að partýið sem mig langaði að fara í verði haldið yfir höfuð.
En það verður bara gert eitthvað skemmtilegt í staðinn, það hefur nú aldrei verið hægt að kvarta yfir því að það vanti eitthvað að gera á Akureyri er það nokkuð?
Bið að heilsa í bili og Gleðileg Jól elskurnar mínar

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 01:55:31 / heimir

Skyldi það vera jólahjól

Mig langaði að byrja á því að biðjast afsökunar ef ég er að brjóta höfundarréttarlög með ofangreindri fyrirsögn.

Eeeen já þessi færsla verður nú aðallega nýtt í það að óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla þið elsku dyggu lesendur mínir. Takk fyrir að hafa lesið hugverk mín svona reglulega.

Þegar þú lest þetta er ég mjög líklega farinn, verð ekki á Íslandi um jólin heldur í Þýskalandi. Landið sem fann upp leðursmekkstuttbuxur, það er eitthvað til að stæra sig af!

Sé ykkur um áramótin, ef ég þekki þig það er að segja.

Bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 20:31:41 / heimir

Kona eða Kjötskrokkur

Jahá svona er lífið nú ótrúlegt, hún Unnur okkar bara ungfrú heimir(ur) .

Þá er þeirri umræðu lokið, og ný getur hafist. Ég slasaði mig í gær, er illa tognaður og illa liðinn.

Stelpur á fylleríi eru oft fyndnar, ég fékk ímeil sem að lýsir því mjög vel:

1. I HAVE ABSOLUTELY NO IDEA WHERE MY PURSE IS.

2. I BELIEVE THAT DANCING WITH MY ARMS OVERHEAD AND WIGGLING MY BUTT
WHILE YELLING "WOO-HOO!" IS TRULY THE SEXIEST DANCE MOVE AROUND.


3. I'VE SUDDENLY DECIDED I WANT TO KICK SOMEONE'S ASS AND HONESTLY
BELIEVE I COULD DO IT TOO.


4. IN MY LAST TRIP TO PEE, I REALIZE I NOW LOOK MORE LIKE A HOMELESS
HOOKER THAN THE GODDESS I WAS JUST FOURS HOUR AGO.

5. I DROP MY 3:00 A.M. KEBAB ON THE FLOOR (WHICH I'M EATING EVEN THOUGH
I'M NOT THE LEAST BIT HUNGRY), PICK IT UP AND CARRY ON EATING IT.

6. I START CRYING AND TELLING EVERYONE I SEE THAT I LOVE THEM SOOOOO
MUCH.

7. I GET EXTREMELY EXCITED AND JUMP UP AND DOWN EVERY TIME A NEW SONG
PLAYS BECAUSE "OH MY GOD! I LOVE THIS SONG!"

8. I'VE FOUND A DEEPER/SPIRITUAL SIDE TO THE GEEK SITTING NEXT TO ME.

9. THE MAN I'M FLIRTING WITH USED TO BE MY JUNIOR SCHOOL TEACHER.

10. THE URGE TO TAKE OFF ARTICLES OF CLOTHING, STAND ON A TABLE AND SING
OR DANCE BECOMES STRANGELY OVERWHELMING.

11. MY EYES JUST DON'T SEEM TO WANT TO STAY OPEN ON THEIR OWN SO I KEEP
THEM HALF CLOSED AND THINK IT LOOKS EXOTICALLY SEXY.

12. I'VE SUDDENLY TAKEN UP SMOKING AND BECOME REALLY GOOD AT IT.

13. I YELL AT THE BARMAN, WHO (I THINK) CHEATED ME BY GIVING ME JUST
LEMONADE, BUT THAT'S JUST BECAUSE I CAN NO LONGER TASTE THE GIN.

14. I THINK I'M IN BED, BUT MY PILLOW FEELS STRANGELY LIKE THE KITCHEN
FLOOR


15. I START EVERY CONVERSATION WITH A BOOMING, "DON'T TAKE THIS THE
WRONG WAY BUT..."

16. I FAIL TO NOTICE THAT THE TOILET LID'S DOWN WHEN I SIT ON IT.

17. MY HUGS BEGIN TO RESEMBLE WRESTLING TAKE-DOWN MOVES.

18. I'M TIRED SO I JUST SIT ON THE FLOOR (WHEREVER I HAPPEN TO BE
STANDING) AND TAKE A QUICK NAP.

19. I BEGIN LEAVING THE BUTTONS OPEN ON MY BUTTON FLY PANTS TO CUTDOWN
ON THE TIME I'M IN THE BATHROOM AWAY FROM MY DRINK.

20. I TAKE MY SHOES OFF BECAUSE I BELIEVE IT'S THEIR FAULT THAT I'M
HAVING PROBLEMS WALKING STRAIGHT

Þegar ég las þetta þá bara sá ég ljóslifandi allnokkrar vinkonur mínar og fyrrum meðleigjanda..  You know who you are.

Cya


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 16:49:48 / heimir

Mannfælinn eða bara leiðinlegur?

One might ask himself. En alla vega þá langaði mig að byrja á því að bjóða hann Hlyn (HBO, H-Dog, Maples) velkominn í hóp bloggara og er ég hér með búinn að linka á hann hérna vinstra megin. JEIJ!!

En já svo var nú fleira sem mig langaði að minnast á, England var skemmtilegt, lítið að gera er leiðinlegt og skíða/snjóbrettaíþróttin er bara orðin fyrir ríkt fólk. Fór í fjallið í gær, það var geggjað fyrir utan það að það kostaði 1200 kall!!!! fyrir 4 klukkutíma, og ef ég hefði mætt klukkan 19:00 þegar var klukkutími eftir af opnunartímanum þá hefði það verið BARA 700.. Sem er meira en flestir sem fara á skíði fá í tímakaup. Ég skil alveg af hverju þetta er svona dýrt sökum snjóvéla og nýrrar lyftu, en samt, 1200 á virkum dögum er bara geðveiki!

www.biturleiki.com

En annars er ég bara nokkuð sáttur með lífið, er á leiðinni aftur út, sem verður bara snilld. Þýskaland verður það núna og kem ég til með að vera þar um jólin. Ábendingar um það hvernig á að sleikja upp foreldra kærustu sem maður þekkir ekki eru vel þegnar!

Annarskveð ég bara á þessum nótum:

It´s peanut butter jelly time!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2005 13:24:14 / heimir

Hmm Weird!

Niðurstöður úr síðustu skoðanakönnun eru komnar inn og eru þær eftirfarandi:

Veturinn góður?
Nei!!
30%
Gaman að keyra en leiðinlegt að verða blaut/ur í lappirnar
23%
Ahh loksins skóli
5%

5%
Kauptu handa mér pizzu amma
47%

Af þessu máglöggt sjá af hverju offituvandamálið fer svona ört hækkandi hér á Íslandi, eingöngu vegna þess að fólk frá blautu barnsbeini vill einvörðungu lifa á Ömmupizzum þar til það er fullorðið.. Sjálfur panta ég mér frekar pizzu

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 07:21:17 / heimir

Koss á skalla

Já krakkar mínir og Steinunn sóðakjaftur ég biðst afsökunar á því hversu lítið hefur verið skrifað hér uppá síðkastið en svoleiðis vill nú bara til að ég er búinn að vera úr internetsambandi síðustu 3 vikur eða svo. Eeeen nú skal reyna að bæta sig. Ég má nú bara til með að segja ykkur frá þeim hlutum sem drifið hafa á daga mína í þessari fjarveru minni.

1. Ég sá sextugann mann rjúka uppað öðrum eldri manni og greiða comb-overið hans frá og kyssa hann á skallann sem var að myndast.

2. Ég sá sama mann læðast aftan að sama manni þegar hann var að pissa og gilla á honum punginn aftan frá.

3. Ég vorkenndi fisk þegar ég var að fara að slægja hann, hann reyndi svo harðlega að berjast fyrir lífi sínu að hann skeit innyflunum rétt áður en hnífurinn rann í hálsinn á honum.

4. Ég er búinn að sanka að mér ýmis konar ónothæfu drasli eins og blautum fisköskjum, notuðum klósettpappír og ónýtum hártopp.

Það er merkilegt hvað maður getur skemmt sér vel yfir litlu hlutunum í lífinu, og pirrað sig yfir litlum hlutum líka. Ég einmitt er búinn að pirra mig GRÍÐARLEGA á einu, eða einum, síðustu vikuna. Það var einn maður sem að sagði HA! í endann á hverri einustu fokking setningu sem hann sagði, eins og hann væri að leita eftir samþykki og hlustun allra. Skipti engu máli hvort það var spurning eða endir á sögu alltaf þurfti þetta HA! að fylgja með, þangað til einu sinni þá kom ekkert, í smástund, allt í einu var sem hann hefði fattað að hann gleymdi að segja HA! og auðvitað þurfti hann að fleygja því fram. Pirrandi? já.

En annars er nú ekki mikið í fréttum, næsta Englandsferð verður jú farin á fimmtudaginn, gríðarleg tilhlökkun í gangi. Leitin að sal fyrir gamlárskvöld er ávallt jafn tu$$()-strembin, og ef einhver af mínum lesendum er með hugmyndir, endilega deila þeim, ég er að verða þurrausinn.

Bið ykkur vel að lifa í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3